Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2011


 

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2011 var samþykktur á fundi hreppsráðs mánudaginn 30. apríl 2011 og vísað til endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustustöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2011 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.070,0 millj. kr. samanborið við 1.015,0 millj. kr. árið 2010. Hækkun milli ára er 5,4%.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 931,7 millj.kr., en voru 928,5 millj. kr. á árinu 2010. Hækkun frá fyrra ári nemur 0,3%.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2011 námu 20,4 millj. kr. samanborið við 83,7 millj. kr. árið 2010. Lækkun fjármagnsgjalda umfram fjármunatekjur milli ára skýrist af endurútreikningi á gengistryggðum lánum á árinu 2011.

Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 120,6 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 4,9 millj. kr. á árinu 2010.


Attachments