Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2012


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2012 var lagður fram til fyrri umræðu í  sveitarstjórn mánudaginn 29. apríl 2013 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustustöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2012 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.158,0 millj. kr. samanborið við 1.070,0 millj. kr. árið 2011. Hækkun milli ára er 8,2%.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 1.017,0 millj.kr., en voru 931,7 millj. kr. á árinu 2011. Hækkun frá fyrra ári nemur 9,2%.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2012 námu 111,1 millj. kr. samanborið við 20,4 millj. kr. árið 2011. Megin skýringin á þessum mismun er að á árinu 2011 voru færðar 137,4 millj. kr. til tekna vegna endurútreiknings á gengistryggðum lánum.

Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 37,7 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 120,6 millj. kr. á árinu 2011.


Attachments

Ársreikningur 2012 Rangárþing ytra 27042013.pdf