N1 hf: Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2013


N1 birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2013, miðvikudaginn 26. febrúar 2014.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 27. febrúar 2014 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Kynningin hefst klukkan 16:00 í sal H.

Eggert Benedikt Guðmundsson forstjóri N1 og Eggert Þór Kristófersson framkvæmdastjóri fjármálasviðs N1 munu kynna afkomu félagsins og svara spurningum.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu N1: www.n1.is/fjarfestatengsl