N1 hf: Afkoma N1 hf. fyrir árið 2013


Helstu niðurstöður

  • Rekstrartekjur 58.122 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 1.783 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir án einskiptiskostnaðar vegna skráningar á markað og sölu Bílanausts 2.155 m.kr.
    • Heildarhagnaður ársins 637 m.kr.
    • Eiginfjárhlutfall 56,5%
    • Birgðir og viðskiptakröfur lækka um 2.696 m.kr. frá fyrra ári
    • Viðskipti með hlutabréf í N1 hófust 19. desember 2013

Tíðindi úr rekstri ársins 2013

Rekstur Bílanausts var skilinn frá rekstri félagsins í byrjun ársins og var félagið selt í maí 2013. Salan einfaldar vöruframboð N1 og minnkar fjárbindingu í birgðum og viðskiptakröfum hjá félaginu, en sölunni fylgdi töluverður einskiptiskostnaður á árinu 2013.

Nýtt vöruhús í Klettagörðum 13 var tekið í notkun á árinu þar sem félagið flutti alla lagerstarfsemi á einn stað en hún var áður á nokkrum stöðum  á höfuðborgarsvæðinu. Ný og endurbætt þjónustustöð N1 í Borgarnesi var opnuð í maí 2013.

Félagið endurfjármagnaði öll langtímalán á þriðja ársfjórðungi sem lækkar vaxtakostnað til framtíðar en samhliða því samdi félagið um aðgengi á lánalínum sem styður við árstíðarbunda sveiflu í rekstrinum.

Hlutabréf í N1 voru tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland 19. desember 2013 að undangengnu almennu útboði á 28% hlut Framtakssjóðs Íslands og Íslandsbanka hf. Þátttaka í útboðinu var góð og ljóst að áhugi fjárfesta á félaginu var mikill.

Rekstrarreikningur - einskiptisliðir lita afkomu ársins

Rekstrartekjur N1 hf. á árinu 2013 voru 58.122 m.kr. samanborið við 60.061 m.kr. á árinu 2012. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 1.783 m.kr. samanborið við 2.650 m.kr. á fyrra ári. Heildarhagnaður ársins nam 637 m.kr. samanborið við 1.191 m.kr. á árinu 2012.

Mikill kostnaður féll til á árinu vegna einskiptisliða. Þannig er bókfærður kostnaður vegna skráningar félagins og sölu Bílanausts 372 m.kr. Þetta litar einkum afkomu fjórða ársfjórðungs.

Efnahagur - nettóstaða vaxtaberandi skulda neikvæð um 1,6 ma.kr.

Bókfært verð eigna félagsins þann 31. desember 2013 nam 26.798 m.kr. samanborið við 27.769 m.kr. í árslok 2012. Lækkunina má aðallega rekja til minni birgða og lægri stöðu viðskiptakrafna. Eigið fé nam 15.152 m.kr. en var 14.514 m.kr. í upphafi ársins. Eiginfjárhlutfall var 56,5% þann 31. desember 2013 og námu heildarskuldir og skuldbindingar 11.647 m.kr. á sama tíma.

Vaxtaberandi skuldir við lánastofnanir og tengda aðila námu 7.064 m.kr. þann 31. desember 2013.

Handbært fé og skuldabréfaeign nam 6.040 m.kr. í lok ársins. Eign í hlutdeildarfélögum, öðrum félögum og kröfur á tengda aðila ásamt fasteigninni Bíldshöfða 9, sem haldið er til sölu, námu 2.672 m.kr.

Staða vaxtaberandi skulda að frádregnum ofangreindum eignum er neikvæð um 1.648 m.kr.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 4.543 m.kr., samanborið við 2.540 m.kr. árið áður. Aukninguna má að stórum hluta rekja til lækkunar birgða og viðskiptakrafna, samtals að fjárhæð 2.696 m.kr. Fjárfestingarhreyfingar, þ.e. keyptir rekstrarfjármunir að frádregnum þeim seldu, voru jákvæðar um 491 m.kr. á árinu 2013. Skýrist þetta að mestu af innheimtu á söluandvirði fasteignarinnar að Klettagörðum 13 í ársbyrjun, en sú eign var keypt og að hluta greidd árið áður, og sölu á Bílanausti í maí. Fjárfestingahreyfingar voru neikvæðar um 1.045 m.kr. á árinu 2012. Fjármögnunarhreyfingar, þ.e. greiðslur afborgana og vaxta langtímalána, námu 1.522 m.kr., samanborið við 1.179 m.kr. á árinu 2012. Muninn má rekja til niðurgreiðslu lána að fjárhæð 890 m.kr. samhliða endurfjármögnun langtímalána, en afborganir árið 2012 námu 567 m.kr. Handbært fé N1 jókst því um 3.512 m.kr. á árinu, samanborið við 316 m.kr. aukningu árinu 2012, og nam 6.019 m.kr. í árslok 2013.

Aðalfundur og tillaga um arðgreiðslu

Aðalfundur N1 verður haldinn 27. mars 2014 kl. 16:00. Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að greiddur verði arður að fjárhæð 1.650 m.kr. Eftir fjárhagslega endurskipulagningu 2011 hefur arðgreiðslubann verið í gildi en tillaga þessi er samkvæmt núverandi stefnu um eiginfjárstýringu.

Nánari upplýsingar veita Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri, (ebg@n1.is) og Eggert Þór Kristófersson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, (eggert@n1.is).


Attachments

N1 hf - Afkomutilkynning 2013 N1 hf - Financial Statements 2013 N1 hf - Ársreikningur 2013