Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2014


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2014 var lagður fram til fyrri umræðu í  sveitarstjórn miðvikudaginn 29. apríl 2015 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess. það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2014 námu rekstrartekjur A og B hluta 1.360,7 millj. kr. samanborið við 1.231,4 millj. kr. árið 2013. Hækkun milli ára er 10,5%.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 1.173,8 millj.kr., en voru 1.038,3 millj. kr. á árinu 2013. Hækkun frá fyrra ári nemur 13,1%.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2014 námu 79 millj. kr. samanborið við 86,5 millj. kr. árið 2013. Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 109,1 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 115 millj. kr. á árinu 2013.

 


Attachments

Ársreikningur 2014 Rangárþing ytra_áritun byggðaráðs.pdf