Stefnt að útgáfu víkjandi skuldabréfs.


Eins og fram kom í tilkynningu félagsins til markaðarins þann 27. ágúst sl., í tengslum við árshlutauppgjör þess, ákvað stjórn félagsins að ekki yrði á þeim tímapunkti farið í útgáfu á víkjandi skuldabréfi, en að lagt yrði mat á fýsileika útgáfu með reglulegum hætti.

Á fundi sínum í dag ákvað stjórn að stefnt yrði að útgáfu víkjandi skuldabréfs. Greining hefur farið fram á hagkvæmustu fjármagnsskipan félagsins með tilliti til nýrra gjaldþolsreglna samkvæmt Solvency II og er því stefnt að útgáfu víkjandi skuldabréfs fyrir allt að 2.500 m.kr. á árinu 2016, náist ásættanleg kjör. Útgáfan mun tilheyra eiginfjárþætti 2 (Tier 2) sem miðar að því að gera fjármagnsskipan félagsins sem hagkvæmasta. Félagið mun afla sér ráðgjafar í tengslum við útgáfu og sölu skuldabréfsins en stefnt er að skráningu þess í Kauphöll.