Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2015 var lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps fimmtudaginn 28. apríl 2016. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður ársreikninginn tekinn til umræðu í sveitarstjórn fyrir 15. maí nk.
Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps árið 2015 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, þ.e. A- og B-hluta, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð, en auk hans Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B-hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir, Leiguíbúðir aldraðra, Legudeildin Sundabúð, Lyfsala, Skiphólmi ehf. og Arnarvatn ehf
Helstu niðurstöður ársreiknings 2015 eru eftirfarandi:
- Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta á árinu var jákvæð um 46 millj. kr., en niðurstaða A-hluta var neikvæð um 49 millj. kr.
- Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nam 120 millj. kr., en 48 millj. kr. í A-hluta.
- Skuldir og skuldbindingar A- og B-hluta námu 608 millj. kr. í árslok 2015, en 545 millj. kr. í A-hluta.
- Eigið fé A- og B-hluta nam um 808 millj. kr. í árslok en eigið fé A-hluta nam um 568 millj. kr.
- Skuldahlutfall A- og B-hluta, skv. skilgreiningu í reglugerð um fjárhagsleg viðmið nr. 502/2012, nemur 65,1% í árslok 2015, en þetta hlutfall var 72,3% í árslok 2014.
- Skuldaviðmið A- og B-hluta, skv. sömu reglugerð, nemur 62,5% í árslok 2015, en þetta hlutfall var 70,5% í árslok 2015. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum og ofangreindri reglugerð þá skulu þessi hlutföll ekki var hærri en 150%.
- Þá skulu samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A- og B-hluta ekki vera hærri en sem nemur samanlögðum reglulegum tekjum á hverju þriggja ára tímabili. Rekstrarjöfnuður Vopnafjarðarhrepps fyrir A- og B-hluta hefur verið jákvæður undanfarin ár og verður jákvæður áfram gangi fyrirliggjandi áætlanir sveitarfélagsins eftir.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri.