Klappir Grænar Lausnir hf.: Birting skráningarskjals Klappa Grænna Lausna hf.


Birting skráningarskjals og samþykki um töku til viðskipta á First North markað Nasdaq Iceland hf.

Klappir Grænar Lausnir hf. ("Klappir") hafa birt skráningarskjals vegna fyrirhugaðar töku allra útgefinna hlutabréf í B-flokki í félaginu til viðskipta á First North markað Nasdaq Iceland hf. Í kjölfar birtingar skráningarskjalsins hefur öllum skilyrðum fyrir töku hlutanna til viðskipta á First North Iceland verið aflétt og hefur Nasdaq Iceland hf. þar af leiðandi samþykkt töku þeirra til viðskipta.

Heildarfjöldi útgefinna hluta í félaginu skiptist í tvo flokka. B-flokki hlutabréfa að nafnverði 66.500.000 kr. að nafnverði og A-flokk að 50.000.000 kr. að nafnverði. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði.

Hlutir í B-flokki hlutabréfa eru gefnir út rafrænt í kerfum Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. og er ISIN númer þeirra IS0000029171 og auðkenni þeirra KLAPPIR B. Auðkenni hlutanna í kerfum First North Iceland er KLAPP B. Hlutir í A-flokki hlutabréfa eru gefnir út rafrænt í kerfum Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. en þeir ekki skráðir, hvorki í kauphöll ná á markaðstorgi fjármálagerninga og er ekki er fyrirhugað að sækja um skráningu þeirra.

Eigendur beggja flokka hlutafjár njóta sömu réttinda skv. samþykktum félagsins að öllu öðru leyti en rétti til atkvæðisvægis og rétti til forgangs við hlutafjáraukningu. Ber A-flokkur hlutabréfa 100% atkvæðavægi á hluthafafundum en B-flokkur hlutabréfa ber ekki atkvæðisrétt. Eigendur í báðum flokkum eiga forgangsrétt að hlutafjáraukningu í samræmi við hlutfallslega hlutafjáreign við hækkun í B-flokki en við hækkun í A-flokki nær forgagnsréttur einungis til hluthafa í A-flokki hlutabréfa.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. er viðurkenndur ráðgjafi Klappa í því ferli að fá hlutabréf félagsins tekin til viðskipta. Nánari upplýsingar um félagið og hlutabréf þess má finna í skráningarskjalinu sem er dagsett 19. september 2017 og birt á vef félagsins, www.klappir.com/fjarfestar.

Um Nasdaq First North

Nasdaq First North er skilgreint sem markaðstorg (e. Multilateral Trading Facility) rekið af Nasdaq Nordic kauphöllunum (Nasdaq First North Denmark er skilgreint sem hliðarmarkaður). Markaðurinn hefur ekki lögbundinn sess sem skipulegur markaður innan Evrópusambandsins. Félög á Nasdaq  First North lúta reglum Nasdaq First North en ekki þeim lagalegu kvöðum sem fylgja því að skrá fyrirtæki á skipulegan verðbréfamarkað. Áhættan við slíka fjárfestingu getur verið meiri á Aðalmarkaði.

Viðurkendur ráðgjafi

Arion banki hf. er viðurkenndur ráðgjafi Klappa Grænna Lausna hf. og eru tengiliðir Ástrós B. Viðarsdóttir, astros.vidarsdottir@arionbanki.is og Hrefna Hrólfsdóttir, hrefna.hrolfsdottir@arionbanki.is.