Klappir Grænar Lausnir hf.: Rekstur á þriðja ársfjórðungi gekk vel





 

Lykiltölur úr óendurskoðuðu milliuppgjöri Klappa Grænna Lausna hf.

  • Tekjur samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi voru 50,4 m.kr.
  • Tekjur samstæðunnar fyrstu níu mánuði ársins voru 148,7 m.kr. og jukust um 182% milli ára.
  • EBITDA afkoma á þriðja ársfjóðungi var 1,4 m.kr.
  • Viðskiptavinir félagsins voru 43 í lok árshlutans en alls nota 143 lögaðilar hugbúnað félagsins.



Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri
"Rekstur á þriðja árshluta ársins 2017 gekk vel. Viðskiptavinum félagsins fjölgar jafnt og þétt en mörg af öflugustu félögum landsins eru í viðskiptum.
Skráning félagsins á Nasdaq First North markaði í Nasdaq kauphöllinni á Íslandi gekk vel. Með skráningunni gefst þeim fjárfestum og einstaklingum, sem hafa trú á að með grænum innviðum og öflugri upplýsingatækni tækifæri til að vera þátttakendur í þróun grænna hugbúnaðarlausna og innleiðingu þeirra í gegnum Klappir.
Félagið hefur sterka stöðu og býr yfir framúrskarandi starfsfólki, nægu veltufé og traustum viðskiptavinum sem myndar grundvöllinn fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins."




Frekari upplýsingar veita
Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa Grænna Lausna, sími: 664-9200
Eðvarð Jón Bjarnason, fjármál, sími: 699-3884