Félagsbústaðir - árshlutareikningur 3.ársfjórðungur 2017


 

Félagsbústaðir hf, eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, sem eiga og reka félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla og skal rekstur þess vera sjálfbær. Félagið á og rekur 1968 almennar leiguíbúðir auk 379 þjónustuíbúða fyrir aldraða ásamt 137 litlum íbúðum í sambýlum fyrir fatlað fólk, eða samtals 2.484 íbúðir í Reykjavík.

Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða hf. á tímabilinu námu 2.704 millj. kr. sem er 10,3% aukning tekna frá sama tímabili 2016 aðallega vegna hækkunar leigu um 5% þann 1. ágúst,  verðlagshækkunar leigu og stækkunar eignasafnsins.

Rekstrargjöld námu samtals 1.447 millj. kr. og hækkuðu miðað við sama tímabil 2016 um 8,5%. Af einstökum rekstrarþáttum hækkaði rekstrarkostnaður fasteigna um 6,7%, viðhald og framkvæmdir um 8,7% og fasteigna- og brunabótaiðgjöld um 11,8%.

Rekstrarhagnaður Félagsbústaða hf. fyrir vaxtagjöld, verðbætur lána og matsbreytingu fjárfestingaeigna jókst um 12,4% miðað við sama tímabil 2016, úr 1.119 millj. kr. í 1.257 millj. kr.

Hrein vaxtagjöld námu 858 millj. kr. og jukust um 12,5% milli tímabila, vaxtaþekja rekstrarhagnaðar tímabilsins í ár var 1,55 miðað við 1,49 sama tímabil á fyrra ári.

Rekstrarafkoma Félagsbústaða hf. fyrir verðlagsbreytingar lána og matsbreytingu eigna nam 438 millj. kr. á tímabilinu miðað við 362 millj. kr. fyrir sama tímabil 2016 sem er 21,2% hækkun hagnaðar.Verðbreyting lána nam samtals 426 millj. kr. á tímabilinu.

Við mat á eignum Félagsbústaða til útleigu er stuðst við fasteignamat sem Þjóðskrá Íslands reiknar og tekur gildi í upphafi árs 2018 (verðmæti m.v. feb 2017), að teknu tilliti til 8,4% hækkunar á vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu frá febrúar 2017 til loka tímabilsins. Matsbreyting fjárfestingaeigna félagsins nam 8.178 mkr þann 30.09. 2017 en var 7.276 mkr fyrir sama tímabil árið 2016.

Hagnaður Félagsbústaða hf. nam 8.190 millj.kr. á tímabilinu en var 7.125 millj.kr. á sama tímabili árið 2016.

Efnahagsreikningur 30.09.2017

Heildareignir Félagsbústaða hf. 30.09.2017 námu 77,2 milljörðum kr. og jukust um 9,5 milljarða kr. á tímabilinu frá áramótum, eða um 14,0%. Matsbreytingar fjárfestingaeigna skýra eignaaukn-inguna að stærstum hluta. Eigið fé félagsins nam 40,9 milljörðum.kr. þann 30.09.2017 og jókst um tæpa 8,2 milljarða kr. frá áramótum, eða um 25,0%. Eiginfjárhlutfall var 53,0% þann 30.09.2017 en var 48,3% í árslok 2016.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 444 millj. kr. á tímabilinu 1.1.-30.09. 2017 sem er um tæpum 176 millj. kr. meira en á sama tímabili árið á undan. Fjárfestingar á tímabilinu námu 2.857 millj. kr. miðað við 528 millj. kr. á sama tímabili árið áður. Fjármögnunarhreyfingar tímabilsins voru tæplega 1.583 millj. kr. samanborið við rúmlega 5 millj. kr. á sama tímabili árið áður. Á tímabilinu 1.1. – 30.09. 2017 keypti félagið 34 íbúðir.

 


Attachments

Árshlutareikningur Félagsbústaðir hf F3 2017 undirr.pdf