Leiðrétting: Félagsbústaðir: Niðurstaða skuldabréfaútboðs - Frétt birt 2018-01-11 20:15:09


Leiðrétting á frétt sem birt var 2018-01-11 kl. 20:15:09 CET. Leiðréttingin er útskýrð í töflu hér að neðan og henni fylgir svo leiðréttur texti.

 

Flokkur Heildarnafnvirði tilboða Tilboðum tekið Bil ávöxtunarkröfu
FB100366 2.460 m.kr.
(áður tilgreint 2.260 m.kr.)
800 m.kr.
(áður tilgreint 685 m.kr.)
Óbreytt
FB100366u 1.120 m.kr.
(áður tilgreint 1.320 m.kr.)
0 m.kr.
(áður tilgreint 300 m.kr.)
2,84-3,40%
(áður tilgreint 2,77-3,40%)

 

Lokuðu útboði Félagsbústaða hf. á skuldabréfum þann 11. janúar 2018 er lokið. Boðin voru til sölu skuldabréf í tveimur nýjum flokkum, FB100366 og FB100366u.

Alls bárust tilboð í FB100366 að nafnvirði 2.460 m.kr. á bilinu 2,47% - 3,20%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 800 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,77%.

Alls bárust tilboð í FB100366u að nafnvirði 1.120 m.kr. á bilinu 2,84% - 3,40%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum.

Stefnt er að töku skuldabréfaflokksins til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur umsjón með fyrirhugaðri skráningu en bankinn hafði einnig umsjón með ofangreindu útboði skuldabréfanna.

Gjalddagi áskrifta, afhending bréfa og skráning á Aðalmarkað Nasdaq Iceland er fyrirhuguð 22. janúar næstkomandi en Nasdaq Iceland tilkynnir um fyrsta viðskiptadag með eins dags fyrirvara.

Nánari upplýsingar veitir:
Auðun Freyr Ingvarsson framkvæmdastjóri Félagsbústaða hf., sími 520-1500, audun@felagsbustadir.is

Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf., sími 444-7337, verdbrefamidlun@arionbanki.is