Vopnafjarðarhreppur ársreikningur 2017
Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2017 var lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps mánudaginn 30. apríl 2018. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður ársreikninginn tekinn til síðari umræðu í sveitarstjórn 17. maí nk.
Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps árið 2017 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, þ.e. A- og B-hluta, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.
Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð, en auk hans Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B-hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir, Leiguíbúðir aldraðra, Legudeildin Sundabúð, Lyfsala, Skiphólmi ehf. og Arnarvatn ehf.
Helstu niðurstöður ársreiknings 2017 eru eftirfarandi:
- Rekstrarniðurstaða A og B hluta á árinu var jákvæð um 96 millj. kr., en niðurstaða A hluta var jákvæð um 34 millj. kr.
- Veltufé frá rekstri A og B hluta nam 138 millj. kr, en 57 millj. kr. í A hluta.
- Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 553 millj. kr. í árslok 2017, en 558 millj. kr. í A hluta.
- Eigið fé A og B hluta nam um 1.043 millj. kr. í árslok en eigið fé A hluta nam um 689 millj. kr.
- Skuldahlutfall A og B hluta, skv. skilgreiningu í reglugerð um fjárhagsleg viðmið nr. 502/2012, nemur 52 % í árslok 2017, en þetta hlutfall var 62 % í árslok 2016.
- Skuldaviðmið A og B hluta, skv. sömu reglugerð, nemur 51% í árslok 2017, en þetta hlutfall var 60 % í árslok 2016. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum og ofangreindri reglugerð þá skulu þessi hlutföll ekki var hærri en 150%.
Þá skulu samanlögð heildarútgjöld til rekstrar vegna A og B hluta ekki vera hærri en sem nemur samanlögðum reglulegum tekjum á hverju þriggja ára tímabili. Rekstrarjöfnuður Vopnafjarðarhrepps fyrir A og B hluta hefur verið jákvæður undanfarin ár og verður jákvæður áfram gangi fyrirliggjandi áætlanir sveitarfélagsins eftir.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Áki Ragnarsson, sveitarstjóri.
Viðhengi