Klappir grænar lausnir hf.: Aðalfundur


Aðalfundur Klappa grænna lausna hf. verður haldinn á Hotel Nordica, í ráðstefnusalnum Vox Club á jarðhæð, miðvikudaginn 10. apríl 2019, og hefst hann kl. 16:00.

Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál:

  1.     Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 
     
  2.     Önnur mál sem eru löglega borin fram.

Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar um breytingu á grein 2.01.5 samþykkta félagsins um heimild til stjórnar um að auka hlutafé félagsins um allt að 50. m.kr. með útgáfu nýrra hluta í B-flokki hlutabréfa. Miðað er við að núverandi  hluthafar falli frá forgangsrétti. Markmið með útboðinu er að styðja við dreifingu á hugbúnaði félagsins á alþjóðlegum mörkuðum og fjölga notendum.

Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, munu verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins, Austurstræti 17, 5. hæð,  tveimur vikum fyrir aðalfund.

Öll gögn verða lögð fram fyrir hluthafa á síðunni www.klappir.is/fjarfestar.

Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað frá kl. 15.45. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í A-flokki hlutabréfa.  B-hlutabréf hafa ekki atkvæðarétt.

Stjórn Klappa grænna lausna hf.