Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2018


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2018 er lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn fimmtudaginn 11. apríl 2018 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps, Húsakynni b.s., Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2018 námu rekstrartekjur A og B hluta 2.027,1 millj. kr. samanborið við 1.781,7 millj. kr. árið 2017. Hækkun milli ára er 13,8%.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 1.668,6 millj.kr., en voru 1.566,7 millj. kr. á árinu 2017. Hækkun frá fyrra ári nemur 6,5%.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2018 námu 119,7 millj. kr. samanborið við 76,1 millj. kr. árið 2017. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 233,8 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 141,5 millj. kr. á árinu 2017.

Viðhengi


Attachments

Rangárþing ytra ársreikningur 2018 fyrri umræða 110419