REG3A fjármögnun: Breyting á undirliggjandi veðandlagi


Í janúar 2014 gaf REG3A fjármögnun út skuldabréf, REG3A 14 1, til fjármögnunar á lánssamningi við Reginn atvinnuhúsnæði ehf. þar sem til tryggingar eru m.a. safn fasteigna í eigu Regins ativnnuhúsnæðis. Samkvæmt þeim lánssamningi er Reginn atvinnuhúsnæði heimilt að gera breytingar á veðandlagi svo lengi sem önnur sambærileg veð komi í staðinn. Slíkt þarfnast þó samþykkis REG3A fjármögnunar sem lánveitanda. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið er að finna í útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins.

Reginn atvinnuhúsnæði hefur óskað eftir því að fá að selja Grensásveg 46, Reykjavík, fastanr. 203-3678 og í staðinn verði sett að veði reiðufé á veðsettum reikningi. Uppreiknað virði eignarinnar til viðmiðunar í lánssamningi er um 116 m.kr. og er það lagt að veði í staðinn.

REG3A fjármögnun hefur samþykkt ofangreinda breytingu á veðandlagi í samræmi við skilmála lánssamnings og útgefinna skuldabréfa REG3A 14 1 og verður veði aflétt og reiðufé greitt inn á veðsettan reikning.

Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, forstöðumaður skuldabréfa, Júpíter rekstrarfélagi hf. í síma 854-1090.