Klappir grænar lausnir hf.: Klappir og Stiki sameinast


  • Samruni styrkir hugbúnaðargerð á sviði sjálfbærni- og umhverfislausna og eykur kraft til sóknar á alþjóðlega markaði.

Hugbúnaðarfélögin Klappir grænar lausnir hf. og Stiki ehf. hafa undirritað samkomulag um samruna félaganna. Félögin hafa átt farsælt samstarf og sjá margvíslegan ávinning af nánara samstarfi. Við samrunann munu Klappir yfirtaka rekstur Stika og fá eigendur Stika afhent hlutabréf í Klöppum. Starfsmenn sameinaðs félags verða um 30 talsins.
Markmiðið er að efla nýsköpun í upplýsingatækni á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þá treystir samruninn betur forsendur alþjóðlegrar dreifingar á hugbúnaði fyrirtækjanna en hugbúnaðalausnir þeirra vinna allar að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni.


Klappir bjóða hugbúnaðarlausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála sem eru meðal allra fremstu upplýsingakerfa sinnar tegundar í heiminum. Stiki, sem er öryggisvottað fyrirtæki, hefur um árabil unnið að hugbúnaðargerð á sviði áhættustjórnunnar, upplýsingaöryggis, heilsumats og þjónustu við heilbrigðisgeirann. Hugbúnaðarlausnir Stika munu að loknum samruna bætast við lausnaframboð Klappa. Þannig verða RAI heilsumatskerfi Stika og Risk Management Studio færð yfir í lausnagrunn Klappa.


Stiki hefur verið í eigu Svönu Helenar Björnsdóttur, framkvæmdastjóra og stofnanda Stika, Bjarna Þórs Björnssonar og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Rekstrartekjur Stika á árinu 2018 voru 75 m.kr. Klappir eru skráðar á First North hlutabréfamarkað Kauphallar Íslands.


Í þessum viðskiptum er Stiki metið á 122,5 milljónir króna og gengi bréfa í Klöppum er 15. Eigendur Stika fá greitt með hlutabréfum í B-flokki í Klöppum sem gefin verða út að loknu samrunaferlinu, samtals 7.891.378 hlutir. Þá er gerð upp skuld Stika við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins með útgáfu á hlutafé í sama flokki, samtals 288.622 hlutir. Vegna samrunans munu Klappir gefa út samtals 8.180.000 hluti og verður heildarfjöldi hluta í félaginu þá 133.680.000. Fyrrum eigendur Stika skuldbinda sig til að eiga bréfin í Klöppum í amk. þrjú ár.


Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa grænna lausna;
„Greiningar, mat og stjórnun á áhættu eru í dag einn af lykilþáttum loftslagsmála ásamt heilsumati. Það fer vel á því að Klappir og Stiki samþætti hugbúnaðarlausnir sínar þannig að lausnarframboð sameinaðs félags geti tekið á öllum þáttum loftslagsmála. Fyrirtæki og stofnanir víða um heim standa frammi fyrir því að ná þeim markmiðum á sviði umhverfis- og loftslagsmála sem lögð hafa verið til grundvallar Parísarsamkomulagsins og þar kemur íslenskt hugvit og íslensk tækni að góðum notum. Markmið sameinaðs félags er að vaxa enn frekar og nýta það forskot sem félagið hefur nú þegar á sviði framsækinna hugbúnaðarlausna á þessu sviði. Ég hlakka til að vinna með því öfluga starfsfólki sem vinnur hjá Stika.“

Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Stika;
„Samruni Klappa og Stika mun efla og styrkja nýsköpun á Íslandi á sviði sjálfbærnilausna og um leið styrkja íslenskar lausnir og auka slagkraft þeirra í alþjóðlegri samkeppni. Ég vil taka þátt í frekar uppbyggingu á því öfluga fyrirtæki sem til verður með sameiningu. Við höfum háleit markmið varðandi framtíðina og vitum að mikil tækifæri eru til staðar til frekari vaxtar. Að takast á við loftslagsmálin verður ein stærsta áskorun mannkynsins á komandi árum og ég hlakka til að samþætta hugbúnaðarlausnir okkar á sviði áhættugreiningar, áhættumats, áhættustjórnunar við umhverfislausnir Klappa“


Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins;
„Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur í gegnum tíðina komið að fjárfestingu og vexti fjölmargra nýsköpunarfyrirtækja. Loftslagsmálin, umhverfismál almennt og íslensk nýsköpun er okkur hugleikin. Samruni Stika og Klappa er til þess fallinn að efla félögin enn frekar þannig að þau geti orðið enn sterkara bakland okkar í loftslagsmálum á alþjóðavísu. Það er okkur sérstök ánægja að fylgja Stika eftir inn á First North markað Kauphallarinnar. Við verðum áfram hluthafar og bakhjarlar hins sameinaða félags.“


Nánar um Klappir Grænar Lausnir:
Klappir grænar lausnir hf. er leiðandi í heiminum á sviði hugbúnaðarlausna í loftslags- og umhverfismálum. Lausnir og aðferðafræði Klappa fela í sér söfnun, vinnslu og miðlun umhverfisupplýsinga, þar sem mögulegt er að greina gögnin, setja upp töluleg markmið og fá heildstæða yfirsýn yfir mengandi starfsþætti. Klappir grænar lausnir var stofnað í núverandi mynd árið 2017 með samruna þriggja fyrirtækja, KGS, Datadrive og Ark Technology.


Nánar um Stika:
Upplýsingatæknifyrirtækið Stiki var stofnað árið 1992 og er leiðandi á sviði áhættustjórnunar í rekstri. Stiki hefur um árabil þróað hugbúnað til áhættugreiningar, áhættumats og áhættustýringar og verið í samstarfi við háskóla og rannsóknarstofnanir í Evrópu og Norður-Ameríku um þróun nýrra aðferða til áhættugreiningar. Félagið býður upp á heildarlausnir og ráðgjöf við innleiðingu stjórnkerfa skv. ISO-stjórnunarstöðlum, sér í lagi á sviði upplýsingaöryggis. Þá hefur Stiki um áratuga skeið þróað heilsumatskerfi, svokölluð RAI heilsumatskerfi, sem notuð eru í heilbrigðisþjónustu um allt Ísland. Stiki er með viðskiptavini í meira en 20 löndum.


Nánar um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins:
Hlutverk Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins er að stuðla að uppbyggingu og vexti íslensks atvinnulífs með því að taka þátt í fjárfestingum í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Sjóðurinn hefur starfað í rúm 20 ár og fjárfest í yfir 150 sprotafyrirtækjum.


Nánari upplýsingar veita;
Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa grænna lausna, í síma 664 9200.
Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Stika, í síma 899 9200.
Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, í síma 860 9494