Origo hf. - Tilnefningarnefnd Origo hf. auglýsir eftir framboðum til stjórnar


Reykjavík, 17. janúar 2020

Frestur til að skila inn framboðum sem hljóta eiga umfjöllun tilnefningarnefndar er til föstudagsins 31. janúar 2020. Aðalfundur Origo verður haldinn þann 6. mars nk.

Framboðseyðublað er hægt að nálgast í meðf. viðhengi. Skila skal framboðseyðublaði ásamt ferilskrá á netfangið: tilnefningarnefnd@origo.is

Almennur framboðsfrestur til stjórnar er skemmst fimm dögum fyrir aðalfund skv. samþykktum Origo hf. Störf tilnefningarnefndar takmarka ekki heimild frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar allt fram að því tímamarki, en um slík framboð verður ekki fjallað í tillögu tilnefningarnefndar. Rökstudd tillaga tilnefningarnefndar um samsetningu stjórnar verður birt samhliða aðalfundarboði.

Viðhengi


Attachments

Auglýsing tilnefningarnefndar Origo 2020 ORIGO framboð til stjórnarsetu 2020