Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing: Innborgun á höfuðstól / Greiðsla vaxtaauka


Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 hefur útgefandi ákveðið að nýta sér heimild til að greiða inn á höfuðstól skuldabréfsins á næsta vaxtagjalddaga sem er þann 17. febrúar næstkomandi. Sjóðurinn mun því mánudaginn 17. febrúar 2020 greiða alls 250.000.000,- króna inn á höfuðstól bréfsins. Greiðslan er tilkomin vegna afborgana af og uppgreiðslu á skuldabréfum í eigu sjóðsins síðustu vikur og mánuði. Með vísan í skilmála og verðbréfalýsingu VEDS1 14 01 mun útgefandi greiða vaxtaauka vegna ársins 2019 mánudaginn 15. febrúar næstkomandi, samtals 14.700.000,- króna. 

Nánari upplýsingar veitir Júpíter rekstrarfélag hf. sem er rekstraraðili útgefanda í síma 522 0010.