Origo hf. - Auglýsing aðalfundar 6. mars nk. kl. 14:00 í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37


Reykjavík, 14. febrúar, 2020

AÐALFUNDUR ORIGO HF. - föstudaginn 6. mars 2020 kl. 14.00 í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37

Dagskrá fundarins 

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi þess síðastliðið starfsár
  2. Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu
  3. Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum sem felur í sér breytingu á grein 2.1 í samþykktum félagsins
  4. Tillaga stjórnar um að breyta grein 5.1 í samþykktum félagsins þannig að stjórn verði framvegis skipuð 5 mönnum og engum varamanni
  5. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og fyrir setu í undirnefndum
  6. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
  7. Tillaga stjórnar um kaupréttaráætlun
  8. Tillaga um breytingu á samþykktum þannig að stjórn verði veitt heimild til að hækka hlutafé um allt að kr. 18.834.000 að nafnverði
  9. Kosning stjórnar
  10. Kosning endurskoðanda
  11. Tillaga stjórnar um tvo fulltrúa í tilnefningarnefnd
  12. Tillögur frá hluthöfum
  13. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga
  14. Tillaga stjórnar um arðgreiðslustefnu 
  15. Önnur mál

Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning
Hver hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar með nægilegum fyrirvara til að unnt sé að taka mál til meðferðar á fundinum. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en 10 dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 25. febrúar 2020. Nánari upplýsingar um þátttöku og atkvæðagreiðslu er að finna á heimasíðu félagsins.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Fundargögn verða afhent á fundarstað.

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

Aðrar upplýsingar
Endanleg dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og allar tillögur, verða hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins og munu jafnframt liggja frammi á skrifstofu félagsins. Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. a. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um framboð til stjórnar á heimasíðu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

Tillaga tilnefningarnefndar félagsins um samsetningu stjórnar er aðgengileg á heimasíðu félagsins. Endanlegar upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Reykjavík, 14. febrúar 2020,
stjórn Origo hf.

Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna á heimasíðu félagsins, www.origo.is

Sjá í viðhengi auglýsingu og skýrslu Tilnefningarnefndar Origo hf.

 

 

 

Viðhengi


Attachments

Auglýsing - fundarboð á aðalfund Origo 6. mars 2020 Skýrsla Tilnefningarnefndar Origo hf. 14.2.2020