Origo hf. – Viðbrögð vegna Covid-19 og frestun arðgreiðslu


 Reykjavík, 18. mars 2020

  
Stjórn og stjórnendur Origo hf. hafa undanfarnar vikur búið félagið undir þær aðstæður sem hafa skapast vegna Covid-19 veirufaraldursins og efnahagslegar afleiðingar hans.  Félagið er vel í stakk búið til að takast á við þessar fordæmalausu aðstæður, hvort sem litið er til högunar þjónustu við viðskiptavini, fjárhags- eða lausafjárstöðu.  Í ljósi þeirrar miklu óvissu sem ríkir um efnahagshorfur næstu mánuði er það engu að síður talið nauðsynlegt að gæta ítrustu varúðar í að treysta burðarstoðir félagsins enn frekar. 

Aðgerðir stjórnenda miða í fyrsta lagi að því að tryggja rekstrarsamfellu þannig að sem minnst truflun verði á þjónustu Origo við viðskiptavini.  Félagið þjónar í dag fyrirtækjum og stofnunum sem mörg hver gegna samfélagslega mikilvægu hlutverki, m.a. tengt íslenska heilbrigðiskerfinu, almannavörnum, samgöngum, fjármálaþjónustu og verslun. 

Í öðru lagi verður gætt sérstakrar varúðar hvað varðar styrk efnahags- og lausafjárstöðu til að mæta ófyrirséðum aðstæðum sem vísað er til hér að ofan.  Sem liður í því, þá hefur stjórn ákveðið að gera breytingar á greiðsludegi arðs frá því sem tilkynnt var á aðalfundi félagsins þann 6. mars sl.  Á fundinum var samþykkt að greiða út arð að upphæð kr. 0,4138 á hlut fyrir árið 2019, heildarfjárhæð um kr. 180.000.000 og miðað við útborgunardag arðs þann 19. mars nk.  Stjórn hefur ákveðið að fresta arðgreiðsludegi um óákveðinn tíma, en þó svo að nýr arðgreiðsludagur verður ekki seinna en 6. september 2020.

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri, í síma 862 0310 eða á netfanginu fo@origo.is og Gunnar Petersen, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 8259001 eða á netfanginu gp@origo.is.