Correction: Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2019


Norðurþing
Reikningsskil

Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2019

Byggðarráð Norðurþings samþykkti ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2019 á fundi sínum þann 17. apríl 2020, en vegna COVID-19 faraldursins verður hann undirritaður síðar. Fyrri umræða um ársreikninginn fer fram í sveitarstjórn þann 21. apríl.

Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 12. maí 2020, þar sem staðfesting sveitarstjórnar á ársreikningnum er fyrirhuguð.

Komi ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans við afgreiðslu og samþykkt sveitarstjórnar munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun og sveitarstjórn staðfesta ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd.

Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2019 námu 4.936 milljónum króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta.  Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var 12,8 milljónum króna betri en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir en samstæðan skilaði um 152 milljónum króna í restrarafgang. Eigið fé samstæðu sveitarfélagsins í árslok nam 2.213 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam um 675 milljónum króna.  Handbært fé samstæðunnar í árslok nam 580 milljónum króna. 

Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 2.708 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu og dótturfélögum þess nam 268 stöðugildum. Íbúafjöldi sveitarfélagsins 31. desember 2019 var 3.115 og fjölgaði um 72 frá fyrra ári.

Skuldahlutfall samkvæmt núgildandi reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 94% árið 2018 í 96% árið 2019. 

Nánari upplýsingar veitir Drífa Valdimarsdóttir, fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings í síma 464-6100

Húsavík, 21. apríl 2020

Viðhengi


Attachments

Ásreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2019