Origo hf. – Fjárfestakynning 30. apríl 2020 kl. 08:30 - Rafrænn kynningarfundur


Reykjavík, 22. apríl, 2020

Origo hf. heldur rafrænan kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna uppgjörs 1. ársfjórðungs félagsins fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi. Á fundinum munu Finnur Oddsson forstjóri og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstur og afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningin hefst kl. 08:30 og fer fram í gegnum fjarfundabúnað, en einnig verður hægt að fylgjast með netstreymi af fundinum. Skráning fer fram hér: https://www.origo.is/fjarfestakynning

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is