Rekstur Mosfellsbæjar gekk vel á árinu 2019


22. apríl 2020

REKSTUR MOSFELLSBÆJAR GEKK VEL Á ÁRINU 2019

Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2019 var lagður fram á fundi bæjarráðs í dag, miðvikudaginn 22. apríl, og sýnir að Mosfellsbær stendur sem fyrr styrkum fótum.

Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 416 milljónir sem er um 26 milljóna betri afkoma en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Það skýrist af auknum tekjum vegna hærri launatekna íbúa, meiri umsvifum í sveitarfélaginu og lægri fjármagnskostnaði en ráð var gert fyrir.

Helstu tölur um rekstur ársins 2019
Tekjur ársins námu alls um 12.422 milljónum, launakostnaður 5.577 milljónum og annar rekstrarkostnaður var 5.418 milljónir og nemur framlegð því 1.427 milljónum.  Veltufé frá rekstri er 1.239 milljónir eða 10% af tekjum. Eigið fé í árslok nam því 7.197 milljónum og eiginfjárhlutfallið er 33,9%. Skuldaviðmið er 84,7% og því vel innan þess 150% hámarks sem kveðið er á um í lögum. Skuldastaða sveitarfélagsins er í takti við þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Sú uppbygging er í fullu samræmi við framtíðarsýn sveitarfélagsins um að vera fjölskylduvænt, heilsueflandi og framsækið bæjarfélag sem setur umhverfið í öndvegi og hefur þarfir og velferð íbúa að leiðarljósi.

Íbúum í Mosfellsbæ fjölgaði um 640 á árinu 2019 og skilvirkur rekstur og sterk fjárhagsstaða auðveldar samfélaginu að taka vel á móti nýjum íbúum og jafnframt tryggja íbúum framúrskarandi þjónustu.

Framkvæmdir á vegum Mosfellsbæjar á árinu 2020 verða í sögulegu hámarki enda sveitarfélagið í örum vexti. Samtals verður framkvæmt fyrir um þrjá milljarða króna og má þar nefna byggingu Helgafellsskóla, uppbygging íþróttamannvirkja, endurbætur á skólahúsnæði auk gatnaframkvæmda svo nokkuð sé nefnt.

Íbúar Mosfellsbæjar voru 12.069 um síðustu áramót og nemur fjölgunin 5,6% á milli ára sem er meiri fjölgun en áætlanir gerðu ráð fyrir. Mosfellsbær er sjöunda fjölmennasta sveitarfélag landsins og þar störfuðu 784 starfsmenn í 636 stöðugildum í árslok 2019.

Ábyrgur rekstur málaflokka

Rekstur málaflokka gekk vel og er í ágætu samræmi við fjárhagsáætlun. Rekstrargjöld án afskrifta og fjármagnsliða námu 9.626 milljónum en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að verja 9.345 milljónum til reksturs málaflokka.

Fræðslumál eru sem fyrr langstærsti málaflokkurinn en til hans var varið 5.284 milljónum eða 52,77% skatttekna. Til félagsþjónustu var veitt 1.953 milljónum og eru þar meðtalin framlög vegna málefna fatlaðs fólks. Loks eru íþrótta- og tómstundamál þriðja umfangsmesta verkefni bæjarins og til þeirra var ráðstafað um 1.070 milljónum. Til fræðslu-, félagsþjónustu og íþrótta- og tómstundamála er því varið um 83% skatttekna Mosfellsbæjar.

Ársreikningurinn verður tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn þann 29. apríl 2020 og gert er ráð fyrir því að seinni umræða í bæjarstjórn fari fram þann 13. maí.

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar:

“Við hjá Mosfellsbæ viljum vera til fyrirmyndar varðandi rekstur og þróun starfseminnar þannig að íbúar og starfsmenn séu á hverjum tíma meðvitaðir um gæði þjónustunnar og kostnað við að veita hana.  Sveitarfélagið er rekið af ábyrgð með áherslu á komandi kynslóðir og ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2019 dregur að mínu mati ofangreindar áherslur vel fram.

Rekstur og starfsemi sveitarfélagsins hefur gengið vel á umliðnum árum sem hefur gert okkur kleift að byggja undir framtíðina. Fólk hefur streymt til Mosfellsbæjar og íbúum fjölgað um 2.600 manns frá ársbyrjun 2017. 

Skilvirkur rekstur og sterk fjárhagsstaða auðveldar samfélaginu að taka vel á móti nýjum íbúum og þjónustan er vel metin af íbúum samkvæmt niðurstöðum þjónustukönnunar Gallup þar sem við röðum okkur á verðlaunapall.

Rekstrarárangur síðustu ára þar sem sveitarfélagið hefur verið rekið með góðum afgangi er nú hluti af getu Mosfellsbæjar til að taka á móti þeim mótvindi sem ríkir vegna neikvæðra efnahagslegra áhrifa af Covid 19 faraldrinum.

Sem fyrr vil ég nota þetta tilefni til að þakka starfsmönnum Mosfellsbæjar, kjörnum fulltrúum og nefndarfólki fyrir þeirra þátt í þessari góðu rekstrarniðurstöðu hjá Mosfellsbæ og brýna okkur til góðra verka á næstu misserum.“

Nánari upplýsingar veita:

Haraldur Sverrisson bæjarstjóri í síma 525 6700 og Arnar Jónsson, forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar í síma 840-1244 eða í gegnum netfangið arnar@mos.is

Viðhengi


Attachments

Ársreikningur Mosfellsbæjar 2019