Lykill fjármögnun hf. gefur út nýjan skuldabréfaflokk


Lykill fjármögnun hf. hefur lokið skuldabréfaútboði í nýjum óveðtryggðum skuldabréfaflokki með auðkennið LYKILL 21 04. Flokkurinn er óverðtryggður skuldabréfaflokkur með 3,10% föstum vöxtum, mánaðarlegum greiðslum og lokagjalddaga þann 28. apríl 2021.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 1.000 m.kr. á hreina verðinu 100,00 (pari) í lokuðu útboði.

Uppgjörsdagur viðskipta er 30. apríl 2020. Óskað verður eftir því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is; s: 856 6910
Arnar Geir Sæmundsson, forstöðumaður fjárstýringar Lykils fjármögnunar hf.
arnarg@lykill.is, s: 896 6566