Lykill fjármögnun hf.: Leiðrétting: Skuldabréfa- og víxlaútboð 4. júní


Tilkynning þessi hefur verið uppfærð með tilliti til breyttrar lagaheimildar fyrir útboði án útgáfu lýsingar til fagfjárfesta.

Lykill fjármögnun hf. efnir til skuldabréfa- og víxlaútboðs fimmtudaginn 4. júní næstkomandi. Boðnir verða til sölu nýr skuldabréfaflokkur LYKILL 24 06 og nýr 6 mánaða víxill LYKILL 201215.

Skuldabréfaflokkurinn er til 4 ára, ber fasta 2,80% óverðtryggða vexti og er tryggður með veði í útlánum og fjármögnunarsamningum Lykils. Skuldabréfin eru með jöfnum greiðslum höfuðstóls og vaxta á þriggja mánaða fresti og lokagjalddaga 14. júní 2024. Skuldabréfin verða tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Skuldabréfaútboðið verður lokað og skuldabréfin seld á pari eða genginu 100,00.

Víxlaútboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er.

Markaðsviðskipti Arion Banka hf. hafa umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Lykill fjármögnun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Ekki er um almennt útboð að ræða, og er þátttaka í útboðinu aðeins heimil aðilum sem flokkast sem fagfjárfestar skv. 9. tl.  2. greinar laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Útboðið er undanþegið gerð lýsingar, sbr. a-lið, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins  (ESB) nr. 2017/1129 frá 4. júní 2017 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði,  sbr. 2. gr. laga nr. 14/2020 um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreindra flokka skuldaskjala eru birt á vefsíðu félagsins: https://www.lykill.is/starfsemi/fjarfestatengsl/

Skila skal inn tilboðum á netfangið skuldabrefamidlun@arionbanki.is fyrir klukkan 17:00 fimmtudaginn 4. júní. Uppgjör viðskipta fer fram mánudaginn 15. júní 2020.

Nánari upplýsingar veita: Hrafn Steinarsson, Markaðsviðskiptum Arion banka hf., hrafn.steinarsson@arionbanki.is s: 444 6910

Arnar Geir Sæmundsson, Fjárfestingarsviði TM hf., arnargs@tm.is, s: 540 1700