REG3A fjármögnun: Fundur skuldabréfaeiganda REG3A 14 1


Þann 10. janúar 2014 gaf fagfjárfestasjóðurinn REG3A fjármögnun, kt. 431213-9900, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, út skuldabréf að fjárhæð kr. 9.500.000.000,-. Skuldabréfið er skráð í OMX Kauphöll Íslands undir auðkenninu REG3A 14 1. Boðað er til fundar eigenda skuldabréfaflokksins þann 7. júlí kl. 10.00 að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

Á fundinum verður óskað eftir afstöðu eiganda skuldabréfaflokksins til þess að sjóðurinn falli frá veðsetningu eigna eins og hún er tilgreind í útgáfulýsingu REG3A 14 1 og njóti framvegis veðréttinda skv. „almenna tryggingafyrirkomulaginu“ eins og það er skilgreint í grunnlýsingu Regins til útgáfu skuldaskjala, dags. 31. mars 2020. Á móti verður sú breyting gerð að bréfin verða ekki uppgreiðanleg fyrr en 25. ágúst 2021 eða 12 mánuðum síðar en næsti mögulegi uppgreiðsludagur. 

Í skilmálum skuldabréfaflokksins REG3A 14 1 kemur fram að til að samþykkja skilmálabreytingu á skuldabréfaflokknum þarf útgefandi samþykki 90% eigenda útgefinna skuldabréfa flokksins m.v. fjárhæð.

Frekari upplýsingar, gögn og umboð vegna fundarins má nálgast hjá Þorkeli Magnússyni forstöðumanni skuldabréfa hjá Júpíter rekstrarfélagi hf. netfang: thorkell.magnusson@jupiter.is