Klappir grænar lausnir hf.: Tilkynning vegna hækkunar hlutafjár


Þann 27. júlí 2020 tilkynnti Klappir Grænar Lausnir hf. um samþykkt stjórnar um hækkun hlutafjár félagins með
útgáfu 4.085.484 nýrra hluta í Klöppum Grænum Lausnum hf. í B-flokki (KLAPP B) í samræmi við heimild sem
aðalfundur félagsins veitti stjórn hinn 2. apríl 2020.

Hlutafjárhækkunin hefur nú verið skráð hjá Fyrirtækjaskrá og hlutafé félagsins í B-flokki stendurí
kr. 88.112.145 að nafnvirði. Gengi bréfanna var 15,50. 

Nýju hlutirnir hafa verið gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað hefur verið eftir töku þeirra til viðskipta á Nasdaq First North Iceland.

Af nýju hlutafé keyptu innherjar og tengdir aðilar hlutafé að nafnvirði 1.935.484 kr. Sérstakar tilkynningar eru sendar vegna innherja og tengdra aðila.

Nánari upplýsingar veita Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa s. 6649200