Heimavellir hf.: Uppgjör fyrri árshelmings 2020


Heimavellir hf.
Fréttatilkynning 20. ágúst 2020

Heimavellir: Uppgjör fyrri árshelmings 2020

Stjórn Heimavalla hf. samþykkti í dag uppgjör fyrri árshelmings ársins á stjórnarfundi.

Helstu atriði:

  • EBIT framlegð á fyrri árshelmingi er 60,1% (2019: 58,9%)
  • Rekstrartekjur fyrstu sex mánuði ársins nema 1.564 m.kr. (2019: 1.749 m.kr.) og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu er 940 m.kr. (2019: 1.030 m.kr.).
  • Matsbreyting fyrstu sex mánaða ársins er neikvæð og nemur 548 m.kr og er að mestu tilkomin vegna aukinnar vannýtingar og hærri ávöxtunarkröfu eigin fjár við mat á virði eigna.
  • Tap á fyrri árshelmingi nam 475,8 millj. kr. ( 2019: hagnaður 2,8 millj. kr. )
  • Bókfært virði fjárfestingareigna er 48.207 m.kr. 30.júní 2020
  • Handbært fé frá rekstri nam 384 m.kr. en var 78 millj. kr. á sama tíma 2019.
  • Eiginfjárhlutfall 30.6.2020 var 37,5%

Starfsemi
Á fyrstu mánuðum ársins hefur rekstur félagsins í megin atriðum verið í samræmi við áætlanir. Félagið fann fyrir áhrifum Covid-19 faraldursins á 2. ársfjórðungi 2020 með þeim hætti að vannýtingarhlutfall jókst á fjórðungnum og var 6,2% af tekjum samanborið við 5,2% á 1. ársfjórðungi.

Félagið Fredensborg ICE ehf. átti í júnílok 99,45% af útgefnu hlutafé félagsins að teknu tilliti til eigin bréfa.

Nánari upplýsingar veitir:
Arnar Gauti Reynisson framkvæmdastjóri,
gauti@heimavellir.is s. 860 5300

Viðhengi



Attachments

Heimavellir hf. árshlutareikningur 30.6.2020 Final