Uppgreiðsla á LF 14 1


Landfestar ehf. tilkynnti 20. október 2020 um að félagið stefndi að uppgreiðslu á skuldabréfaflokki sínum LF 14 1. Um er að ræða verðtryggðan skuldabréfaflokk sem gefinn var út árið 2014.  Upphafleg höfuðstólsfjárhæð var 12.500 m.kr. að nafnverði og nema eftirstöðvar skuldabréfanna nú um 12.700 m.kr. Skuldabréfin bera 1,5% uppgreiðslugjald samkvæmt skilmálum.

Félagið hefur nú ákveðið að greiða upp skuldabréfin og mun uppgreiðsla fara fram á næsta gjalddaga, þann 12. desember 2020. Þar sem sá dagur er laugardagur fer greiðsla fram á næsta bankadegi, þ.e. mánudeginum 14. desember 2020, í samræmi við skilmála skuldabréfanna. Uppgreiðslan verður að fullu fjármögnuð með lántöku frá móðurfélagi Landfesta ehf., Eik fasteignafélagi hf.

Nánari upplýsingar veita:

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf., lydur@eik.is, s. 820-8980