Fjárhagsáætlun Norðurþings 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024


Fjárhagsáætlun Norðurþings 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024

Fjárhagsáætlun Norðurþings fyrir árið 2021 verður lögð fram til síðari umræðu á fundi sveitarstjórnar Norðurþings í dag. Jafnframt er lögð fram þriggja ára áætlun 2022-2024.

Rekstrarafkoma A og B hluta er áætluð neikvæð um 38,4 milljónir á árinu 2021.
Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt lögum og reglum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða aðalsjóð, eignasjóð og þjónustumiðstöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Dvalarheimili aldraðra sf., Félagslegar íbúðir, Hafnasjóður Norðurþings, Orkuveita Húsavíkur ohf., Leigufélag Hvamms ehf. og Fjárfestingafélag Norðurþings ehf.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi á árinu 2021 verður veltufé frá rekstri A og B hluta um 593 milljónir og fjárfestingahreyfingar 425,5 milljónir. Helstu fjárfestingar á árinu eru framlag til byggingar nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík, gatnaframkvæmdir á Kópaskeri, sjóvarnir í Suðurfjöru, endurnýjun lagna hjá Orkuveitu Húsavíkur og framkvæmdir við Húsavíkurhöfn.
Áætlunin gerir ráð fyrir að tekin verði ný lán vegna framkvæmda Hafnasjóðs að fjárhæð 50 milljónir og að afborganir lána og leiguskulda verði um 268 milljónir. Handbært fé A og B hluta sveitarfélagsins verði þá áætlað tæpar 598 milljónir í lok árs 2021.

Húsavík 1. desember 2020

Nánari upplýsingar veitir Drífa Valdimarsdóttir, fjármálastjóri í síma 464 6100

Viðhengi



Attachments

Áætlun Norðurþings 2021_samstæða Þriggja ára áætlun Norðurþings_A hluti_2022-2024 Þriggja ára áætlun Norðurþings_A og B hluti_2022-2024