Orkuveita Reyjavíkur – Skuldabréfaútboð 8. apríl


Fimmtudaginn 8. apríl 2021 verða boðin til sölu í lokuðu útboði skuldabréf í nýjum grænum skuldabréfaflokki Orkuveitu Reykjavíkur, OR180242 GB.

OR180242 GB er óverðtryggður flokkur með föstum vöxtum og jöfnum afborgunum tvisvar á ári fram að lokagjalddaga þann 18. febrúar 2042.

Útgáfa skuldabréfaflokksins er í samræmi við áður samþykkta lántökuheimild Orkuveitu Reykjavíkur fyrir árið 2021.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar veita:
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is 
Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com