Orkuveita Reykjavíkur – Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa


Lokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 8. apríl 2021. Gefin voru út skuldabréf í nýjum flokki, OR180242 GB.

Flokkurinn er óverðtryggður með föstum vöxtum og jöfnum afborgunum tvisvar á ári fram að lokagjalddaga þann 18. febrúar 2042.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 5.049 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,99% - 4,65%.

Tilboðum að fjárhæð 2.198 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,35%.

Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.


Nánari upplýsingar veita:

Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is 
Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com