Festi hf. : Lækkun hlutafjár - leiðrétting


Aðalfundur Festi hf. sem fram fór þann 22 mars 2021 samþykkti að lækka hlutafé félagsins um 9.199.999 kr. að nafnvirði sem nemur 9.199.999 hlutum, til jöfnunar á eigin hlutum félagsins.  Lækkunin hefur nú verið framkvæmd þann 20. apríl 2021.  Hlutafé félagsins lækkaði úr 332.699.999 kr. í 323.500.000 kr. að nafnvirði sem skiptist í jafnmarga hluti og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.  Félagið á í dag 409.377 eigin hluti.


Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. - mki@festi.is