Marel: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2021 birt 28. apríl, rafrænn afkomufundur 29. apríl 2021


Marel hf. mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða þann 28. apríl 2021.

Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 29. apríl 2021 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7520
  • NL: +31 20 721 9496
  • UK: +44 33 3300 9268
  • US: +1 833 526 8398

Fjárhagsdagatal

  • 2F 2021 – 21. júlí 2021
  • 3F 2021 – 20. október 2021
  • 4F 2021 – 2. febrúar 2022

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 6.800 manns í yfir 30 löndum, þar af um 720 á Íslandi. Marel velti 1.238 milljónum evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.