VÍS: Birting uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2021 og kynningarfundur


VÍS birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða þann 29. apríl næstkomandi. Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn daginn eftir, föstudaginn 30. apríl, klukkan 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 3.  

Helgi Bjarnason, forstjóri félagsins, mun kynna uppgjörið og svara spurningum.  

Við biðjum þá sem hafa hug á að mæta á fundinn að senda tölvupóst á fjarfestatengsl@vis.is svo við getum haldið vel utan um fjölda þeirra sem mæta.  

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/fjarfestafundir/   

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast hér: https://www.vis.is/fjarfestaupplysingar/   

Nánari upplýsingar veitir Erla Tryggvadóttir, samskiptastjóri VÍS, í síma 660-5260 eða með netfanginu fjarfestatengsl@vis.is