Islandsbanki hf.: Birting afkomu 1F2021


Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir fyrsta ársfjórðung 2021 eftir lokun markaða þann 5. maí 2021.

Rafrænn afkomufundur miðvikudaginn 5. maí kl. 16:00

Fundinum verður streymt í vefstreymi er haldið verður miðvikudaginn 5. maí kl. 16.00 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á fyrsta ársfjórðungi. Fundurinn fer fram á ensku.

Skráning á fundinn fer fram hér. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á síðu fjárfestatengsla að fundi loknum.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar í gegnum eftirfarandi símanúmer:

Ísland: +354 800 74 37

Danmörk: +45 3 544 55 77

Svíþjóð: +46 8 566 42 651

Noregur: +47 235 00 243

Bretland: +44 33 330 00 804

Bandaríkin: +1 631 913 1422

Aðgangskóði: 268 994 31#

Fjárhagsdagatal

Stefnt er á að birtingu árshlutauppgjöra bankans á neðangreindum dagsetningum:

  • Árshlutauppgjör 2F2021 — 28. júlí 2021
  • Árshlutauppgjör 3F2021 — 27. október 2021

Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Íslandsbanka í gegnum netfangið ir@islandsbanki.is

Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlega skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari fréttatilkynningu þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út. Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.