Eimskip: Samningur um viðskiptavakt við Arion banka


Eimskipafélag Íslands hf. hefur gert samning við Arion banka hf. um viðskiptavakt með hlutabréf félagsins og tekur samningurinn gildi frá og með 1. maí 2021.

Verður þessi samningur til viðbótar við núverandi samning um viðskiptavakt við Íslandbanka hf.

Samningur félagsins við Arion banka kveður á um að fjárhæð kaup- og sölutilboða skuli að lágmarki vera 50.000 kr., að nafnvirði á gengi sem bankinn ákveður, þó ekki með meira en 3% fráviki frá síðasta viðskiptaverði. Hámarksverðbil kaup- og sölutilboða skal vera 1,5%. Ef viðskiptavakinn á viðskipti með bréf félagsins fyrir 400.000 kr. að nafnvirði eða meira í sjálfvirkri pörun innan dagsins falla niður skyldur um hámarksverðbil kaup- og sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting innan viðskiptadags er umfram 10,0% er Arion banka heimilt að tvöfalda hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða tímabundið þann daginn.

Samningurinn er ótímabundinn og uppsegjanlegur með 14 daga fyrirvara.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is