Eimskip: Heildarfjöldi hluta og atkvæða


Vísað er til hlutafjárlækkunar félagsins sem var framkvæmd með lækkun eigin hluta þann 7. apríl 2021 og lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa í dag, sbr. markaðstilkynningu frá Nasdaq Iceland.

Í 84. gr. verðbréfaviðskiptalaga nr. 108/2007 segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann, á síðasta viðskiptadegi þessa mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Með vísan til þessa upplýsist að hlutafé félagsins er kr. 175.200.000 og hver hlutur er ein króna. Eigin hlutir eru kr. 32.757 og heildarfjöldi atkvæða því kr. 175.167.243.