Eimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2021


Kynningarfundur 12. maí 2021

Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs eftir lokun markaða þriðjudaginn 11. maí 2021.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til rafræns fundar þar sem Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri mun kynna uppgjör fjórðungsins. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 12. maí nk. kl. 8:30 og í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verður hann eingöngu sendur út gegnum fjárfestasíðu félagsins www.eimskip.com/investors. Þar verður útbúinn sérstakur hlekkur áður en fundur hefst.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar fyrir kl. 8:00 á miðvikudagsmorgun á netfangið investors@eimskip.com merkt fjárfestafundur.

Upptaka verður einnig aðgengileg á fjárfestasíðunni að fundi loknum.

Uppgjörsgögn verður hægt að nálgast á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.com.