S&P Global Ratings staðfestir A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs – horfur eru áfram stöðugar


Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur staðfest A/A-1 lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands með stöðugum horfum.

Í fréttatilkynningu S&P kemur fram að þróttmikil innlend eftirspurn mildaði efnahagssamdráttinn á Íslandi árið 2020 sem mældist næstum 7% að raunvirði. Fyrirtækið telur að efnahagsbatinn verði að miklu leyti háður viðsnúningi í ferðaþjónustu. Stjórnvöld veittu umtalsverðan stuðning á sviði ríkisfjármála og peningamála og telur S&P að mestur hluti stuðningsaðgerða muni hafa verið dreginn til baka undir lok árs 2021. Ólíkt fyrri áföllum hefur þrýstingur á ytri hlið hagkerfisins verið viðráðanlegur; viðskiptajöfnuður var lítillega jákvæður, erlend skuldsetning tiltölulega lítil og gjaldeyrisforðinn rúmur.

Stöðugar horfur endurspegla að líklega verður áframhaldandi efnahagsbati á seinni hluta árs 2021. Það ætti að gera stjórnvöldum kleift að vinda ofan af stórum hluta stuðnings á sviði ríkisfjármála og peningamála sem hefur mildað efnahagssamdráttinn og minnkað óstöðugleika í gengi krónunnar í faraldrinum. Það mun halda aftur af hækkun opinberra skulda á næstu árum.

Samkvæmt S&P gæti fyrirtækið hækkað lánshæfiseinkunnir Íslands ef efnahagsbatinn eftir faraldurinn verður umfram væntingar fyrirtækisins og hagkerfi og útflutningur Íslands verða fjölbreyttari með þeim afleiðingum að sveiflur í viðskiptakjörum minnka. Sú sviðsmynd gæti gert hraðari aðlögun ríkisfjármálanna kleifa og lækkað skuldabyrði hins opinbera í átt að því stigi sem hún var á fyrir faraldurinn.

S&P gæti lækkað lánshæfiseinkunnir Íslands ef efnahagsbatinn verður þróttminni eða hægari en nú er gert ráð fyrir og umsvif í ferðaþjónustu verða áfram lítil. Það gæti gerst ef faraldurinn tekur sig upp að nýju eða ef langvarandi breytingar verða á ferðavenjum. Í slíkri sviðsmynd telur S&P að stuðningur á sviði peningamála og ríkisfjármála gæti orðið varanlegri og gæti minnkað svigrúm hagstjórnar og að hreinar opinberar skuldir myndu hækka umtalsvert umfram núverandi væntingar.

Sjá nánar á vef stjórnarráðsins www.fjr.is