Hagar hf.: Framboð til stjórnar á aðalfundi 3. júní 2021


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 3. júní 2021 og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica (VOX Club), Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík.

Framboðsfrestur til stjórnar Haga hf. rann út þann 29. maí sl. Alls bárust 11 framboð til stjórnar félagsins. Allir núverandi stjórnarmenn gefa kost á sér en auk þess buðu sex aðrir einstaklingar sig fram til stjórnarstarfa, sem hafa nú allir dregið framboð sitt til baka.

Eftirtaldir einstaklingar hafa því gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins.

  1. Davíð Harðarson (f. 1976), fjármálastjóri Nordic Visitor
  2. Eiríkur S. Jóhannsson (f. 1968), forstjóri Slippsins Akureyri ehf.
  3. Eva Bryndís Helgadóttir (f. 1972), lögmaður hjá LMG slf.
  4. Jensína Kristín Böðvarsdóttir (f. 1969), framkvæmdastjóri og eigandi Vinnvinn ehf.
  5. Katrín Olga Jóhannesdóttir (f. 1962), eigandi Kría konsulting ehf.

Nánari upplýsingar um frambjóðendur má sjá í meðfylgjandi skali. Þá er tillaga tilnefningarnefndar um stjórnarmenn sem birt var 12. maí sl. einnig meðfylgjandi.

Samkvæmt samþykktum Haga hf. eiga fimm sæti í stjórn félagsins og er því sjálfkjörið. Er það mat stjórnar að allir frambjóðendur séu óháðir félaginu, stjórnendum og stórum hluthöfum þess og að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. í hlutafélagalögum nr. 2/1995.

Stjórn Haga hf.

Viðhengi



Attachments

Framboð til stjórnar Haga 03.06.21 Skýrsla tilnefningarnefndar Haga 2021