Í 46. viku 2021 keyptu Hagar hf. 948.365 eigin hluti fyrir kr. 61.143.725 eins og hér segir:
Dags. | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
15.11.2021 | 11:05 | 500.000 | 64,00 | 32.000.000 | 7.335.000 |
16.11.2021 | 12:25 | 448.365 | 65,00 | 29.143.725 | 7.783.365 |
Samtals | 948.365 | 61.143.725 | 7.783.365 |
Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 25. október 2021, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 22. október 2021.
Endurkaupaáætluninni er nú lokið en Hagar hafa keypt samtals 7.783.365 hluti í félaginu sem samsvarar 6,74% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 499.999.975 sem samsvarar 100.00% af þeirri fjárhæð sem að hámarki mátti kaupa fyrir. Hagar eiga nú samtals 0,67% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.154.232.879.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni mátti heildarkaupverð ekki nema hærri fjárhæð en 500 milljónum króna, með þeim fyrirvara að ekki yrðu keyptir fleiri en 115.423.288 hlutir. Áætlunin var í gildi til 1. júní 2021, eða fram að aðalfundi félagsins 2022, nema ef skilyrði um hámarkskaup yrði uppfyllt fyrir þann tíma. Gildistími áætlunarinnar er því liðinn. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf voru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.