Marel: Ársuppgjör 2021 birt 2. febrúar, rafrænn afkomufundur 3. febrúar 2022


Marel hf. mun birta ársuppgjör 2021 eftir lokun markaða þann 2. febrúar 2022.

Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 3. febrúar 2022 kl 8:30 að íslenskum tíma verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu Árni Oddur Þórðarson forstjóri og Linda Jónsdóttir fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild sinni.

Fundinum verður vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437 (PIN 79477837#)
  • NL: +31 10 712 9162
  • UK: +44 33 3300 9030
  • US: +1 646 722 4957

Fjárhagsdagatal

  • AGM – 16. mars 2022
  • 1F 2022 – 27. apríl 2022
  • 2F 2022 – 27. júlí 2022        
  • 3F 2022 – 2. nóvember 2022        
  • 4F 2022 – 8. febrúar 2023
  • AGM – 22. mars 2023

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, heildarlausna, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá Marel starfa nú um 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti 1,2 milljarði evra árið 2020, en árlega fjárfestir félagið um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið var stofnað 1983, skráð í Kauphöll Íslands árið 1992, og tvíhliða skráð í Euronext kauphöllina í Amsterdam árið 2019.