Ársreikningur REG 1 hs. árið 2021


Sérhæfði sjóðurinn REG 1 hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013.

  • Hagnaður var af rekstri sjóðsins að fjárhæð 284 þús. kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins í árslok 2021 námu 7.061 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 2,2 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2021, efnahagi hans 31. desember 2021 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2021, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir í síma 444 7461.

Viðhengi



Attachments

SÉR - Ársreikn R1 2021