Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing: Ársreikningur 2021


Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Kviku eignastýringar hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014. Meðfylgjandi er ársreikningur fyrir árið 2021 fyrir Veðskuldabréfasjóðinn Virðingu.

  • Tap af rekstri sjóðsins á árinu 2021 nam 1,6 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam 199,9 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. Það er álit þeirra að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2021, efnahag hans 31. desember 2021 og breytingu á hreinni eign á árinu 2021, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Kviku eignastýringar hf. í síma 522-0010.

Viðhengi



Attachments

Virðing ársreikningur 2021