Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup Haga hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og lok endurkaupaáætlunar


Í 13. viku 2022 keyptu Hagar hf. 1.185.000 eigin hluti fyrir kr. 92.246.250 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti 
28.3.202215:12450.00077,7534.987.50020.821.797
29.3.202209:47450.00078,0035.100.00021.271.797
30.3.202210:05285.00077,7522.158.75021.556.797
             1.185.000                 92.246.250               21.556.797 
            

Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 3. mars 2022, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 2. mars 2022.

Endurkaupaáætluninni er nú lokið en Hagar hafa keypt samtals 6.689.734 hluti í félaginu sem samsvarar 6,05% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 499.886.167 sem samsvarar 99,98% af þeirri fjárhæð sem að hámarki mátti kaupa fyrir. Hagar eiga nú samtals 1,87% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.154.232.879.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni mátti heildarkaupverð ekki nema hærri fjárhæð en 500 milljónum króna, með þeim fyrirvara að ekki yrðu keypti fleiri en 110.556.225 hlutir. Áætlunin var í gildi til 1. júní 2022, eða fram að aðalfundi félagsins 2022, nema ef skilyrði um hámarkskaup yrði uppfyllt fyrir þann tíma. Gildistími áætlunarinnar er því liðinn. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf voru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995,  5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, og eftir atvikum II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik.