Marel: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2022 birt 27. apríl, rafrænn afkomufundur 28. apríl 2022



Marel hf. mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2022 eftir lokun markaða þann 27. apríl 2022.

Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum

Fimmtudaginn 28. apríl 2022 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.

Fundinum verður vefvarpað beint á marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.

Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:

  • IS: +354 800 7437 (PIN 37176101#)
  • NL: +31 20 721 9496
  • UK: +44 33 3300 9032
  • US: +1 631 913 1422 (PIN 37176101#)

Fjárhagsdagatal

  • 2F 2022 – 27. júlí 2022        
  • 3F 2022 – 2. nóvember 2022        
  • 4F 2022 – 8. febrúar 2023
  • AGM – 22. mars 2023

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Hjá félaginu starfa yfir 7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019.