Leiðrétting: Marel: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Leiðrétting: Í reglubundinni tilkynningu Marel þann 13. júní 2022 í tengslum við kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlanir, vantaði upplýsingar í viðhengi sem nú hefur verið leiðrétt.


Dagana 8.-10. júní 2022 keypti Marel hf. 690.500 eigin hluti að kaupverði 417.608.000 kr. á Nasdaq Iceland og 32.572 eigin hluti að kaupverði 143.746 evra á Euronext Amsterdam eins og nánar er tilgreint í viðhengi sem og á vefsíðu Marel: marel.com/buyback

Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlanir félagsins á Nasdaq Iceland og Euronext Amsterdam sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2022 í samræmi við heimild aðalfundar Marel hf. þann 16. mars 2022 til kaupa á eigin bréfum.

Marel hf. átti 14.705.704 eigin hluti fyrir viðskiptin sem nemur 1,91% af útgefnum hlutum í félaginu og átti að þeim loknum 15.428.776 eigin hluti eða sem nemur 2,00% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 1.636.954 eigin hluti samkvæmt áætluninni á Nasdaq Iceland og nemur heildarkaupverð þeirra 993.257.124 kr. og 87.372 eigin hluti samkvæmt áætluninni á Euronext Amsterdam og nemur heildarkaupverð þeirra EUR 389.188.

Endurkaup samkvæmt báðum áætlunum munu nema að hámarki samtals 5.000.000 hlutum, þar af 4.000.000 á Nasdaq Iceland og 1.000.000 á Euronext Amsterdam, eða sem nemur samtals 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Hámarks heildarkaupvirði endurkaupaáætlunar á Nasdaq Iceland nemur allt að 3.047.668.000 kr. og hámarks heildarkaupvirði á Euronext Amsterdam nemur allt að 5.590.000 evrum. Endurkaupaáætlunin á Nasdaq Iceland er í gildi á tímabilinu 1. júní 2022 til og með 1. september 2022. Endurkaupaáætlunin á Euronext Amsterdam er í gildi á tímabilinu 2. júní 2022 til og með 2. september 2022.

Framkvæmd endurkaupaáætlana er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052 sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 6/2021. 

Fjárfestatengsl

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.

Um Marel

Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnir fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir 7.500 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.

 

Viðhengi



Attachments

Marel share buy-back 2022 - Transaction history 10 June 2022 - Corrected