Síldarvinnslan hf.: Síldarvinnslan hf. kaupir Vísi hf.


Síldarvinnslan hf. kaupir Vísi hf. - reksturinn verður efldur í Grindavík

  • Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað hefur keypt allt hlutafé sjávarútvegsfyrirtækisins Vísis hf. í Grindavík.
  • Kaupverð hlutafjár er 20 milljarðar króna.
  • Vaxtaberandi skuldir Vísis hf. nema um 11 milljörðum króna. Samtals nema viðskiptin því um 31 milljörðum króna.
  • Greitt er fyrir hlutinn með bréfum í Síldarvinnslunni hf. og reiðufé. Þannig er greitt með reiðufé vegna 30% kaupverðs og með hlutabréfum í Síldarvinnslunni hf. vegna 70%. Miðað er við meðaltalsgengi síðustu fjögurra vikna sem er 95,93.
  • Með þessum viðskiptum verða seljendur meðal kjölfestufjárfesta í Síldarvinnslunni hf.
  • Í tengslum við viðskiptin verður lagt til við hluthafafund Síldarvinnslunnar hf. að stjórn félagsins fái heimild til að auka hlutafé og hluthafar falli frá áskriftarrétti sínum.
  • Höfuðstöðvar bolfiskvinnslu Síldarvinnslunnar hf. verða hjá Vísi hf. í Grindavík.
  • Pétur Hafsteinn Pálsson verður áfram framkvæmdastjóri Vísis.
  • Kaupin eru háð fullnægjandi niðurstöðu áreiðanleikakönnunar, samþykki hluthafafundar Síldarvinnslunnar hf. og Samkeppniseftirlitsins.

Styrkari stoðir og tækifæri til framtíðar

Seljendur og kaupendur eru sammála um að með þessum viðskiptum sé verið að styrkja stöðu beggja félaga til framtíðar. Vísir hf. verður rekið sem dótturfélag og mun starfsemin í Grindavík verða öflugri og framsæknari og ýta undir samkeppnishæfni og sjálfbærni til lengri tíma í sátt við umhverfið. Þá mun alþjóðlegt sölu- og markaðsstarf félaganna eflast. Markmið Síldarvinnslunnar hf. er nú sem endranær að hámarka verðmæti og mun þekking og reynsla starfsfólks og stjórnenda Vísis hf. stuðla að því.

Burðarásar atvinnulífsins

Vísir hf. er rótgróið fjölskyldufyrirtæki í sjávarútvegi þar sem áhersla er lögð á ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði. Félagið gerir út fjögur skip í aflamarkskerfinu og tvo báta í krókaaflamarki. Vísir hf. rekur einnig saltfiskvinnslu og hátækni bolfiskvinnslu í Grindavík, auk þess að eiga erlend dótturfélög. Á fiskveiðiárinu 2022-2023 eru væntar aflaheimildir félagsins um 15 þúsund þorskígildistonn. Ársverk á síðasta ári voru um 250. Ársveltan var rúmlega 10 milljarðar króna og hagnaður ársins liðlega 800 milljónir króna.

Síldarvinnslan hf. er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins og er helsti framleiðandi uppsjávarafurða á Íslandi. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands og eru hluthafar hátt í fimm þúsund talsins. Á síðasta ári voru ársverk samtals um 360. Á fiskveiðiárinu 2022-2023 eru væntar aflaheimildir samstæðunnar liðlega 36 þúsund þorskígildistonn. Ársveltan 2021 var rúmlega 30 milljarðar króna og hagnaður um 11 milljarðar króna.

Síldarvinnslan hf., líkt og Vísir hf. leggur áherslu á hagkvæma og sjálfbæra nýtingu sjávarauðlindarinnar, þar sem leitast er við að nota nýjustu tækni sem völ er á til veiða og vinnslu í sátt við umhverfið. Með kaupunum mun Síldarvinnslan hf. styrkja bolfiskhluta félagsins verulega.

Pétur Hafsteinn Pálsson mun áfram gegna stöðu framkvæmdastjóra Vísis hf.

Verði þessi viðskipti staðfest af hluthafafundi Síldarvinnslunnar hf. og Samkeppniseftirlitinu er útlit fyrir að núverandi fiskveiðiheimildir Síldarvinnslunnar hf. verði lítillega yfir gildandi viðmiðunarmörkum. Komi til þess hefur félagið sex mánuði til að laga sig að þessum viðmiðum.

Veiðiheimildir í uppsjávartegundum – einkum loðnu - eru breytilegar milli ára og hafa því óhjákvæmilega áhrif á kvótaþak frá ári til árs. Enn ríkir óvissa um úthlutanir í aflaheimildum uppsjávarfisks á næsta ári.

Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar hf.:

„Kaupandi og seljendur eru sammála um að með þessum viðskiptum er verið að styrkja bæði félögin til framtíðar. Starfsemin verður öflugri og tryggir samkeppnishæfni til lengri tíma litið. Höfuðstöðvar bolfiskvinnslu Síldarvinnslunnar hf. verða hjá Vísi hf. í Grindavík, enda þar starfrækt hátæknivinnsla og mikil þekking og mannauður til staðar. Við sjáum fyrir okkur mikil tækifæri á vinnslu sjávarafurða í Grindavík, meðal annars vegna aukins fiskeldis á svæðinu á komandi árum. Ég tel að þessi viðskipti séu til mikilla hagsbóta fyrir alla aðila enda er sjávarútvegurinn alþjóðleg atvinnugrein sem þarf að standast harða samkeppni. Til lengri tíma litið ættu viðskiptin því að efla samkeppnisstöðu sjávarútvegs og þjónustu í Grindavík.“

Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis hf.:

„Við, eigendur Vísis hf. færum með þessu móti hlutabréf okkar yfir í annað sjávarútvegsfélag sem er á almennum hlutabréfamarkaði og verðum með því meðal annara kjölfestufjárfesta í öflugu sjávarútvegsfélagi. Við erum þess fullviss að forsendur þess að byggja upp bolfiskvinnsluna í Grindavík eru réttar og munu standast tímans tönn. Þegar við bætast svo allir möguleikarnir sem tengjast laxeldinu getum við ekki annað en verið bjartsýn og þakklát fyrir að vera þátttakendur í þessari vegferð og þeirri framtíðarsýn sem hér er lögð til grundvallar í okkar heimabyggð. Við erum einnig stolt af starfsfólki Vísis sem fær með þessu enn frekari tækifæri til þess að takast á við þessa öflugu atvinnusköpun í Grindavík. Þessi atriði gera þessa stóru ákvörðun okkar léttari.“

Nánari upplýsingar veitir:

Gunnþór Ingvason forstjóri Síldarvinnslunnar hf.
Netfang: gi@svn.is    
Sími 470-7000