Nova Klúbburinn birtir fyrsta uppgjör eftir skráningu á aðalmarkað.


Nova Klúbburinn birtir fyrsta uppgjör eftir skráningu á aðalmarkað.

  • Stöðugur tekjuvöxtur milli ára þar sem enn fleiri viðskiptavinir eru á stærsta skemmtistað í heimi.
  • Góður EBIDTA vöxtur á milli ára

Helstu niðurstöður á öðrum ársfjórðungi:

  • Tekjur voru 3.150 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2022 samanborið við 2.942 m.kr. á sama tímabili (7,1% tekjuvöxtur frá F2 2021)
  • Félagið skilaði góðum EBITDA vexti eða 14,8% og var EBITDA á öðrum ársfjórðungi 2022 832 m.kr. samanborið við 728 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári. EBITDA hlutfallið var 26,4% fyrir annan ársfjórðung samanborið við 24,6% á fyrra ári.
  • Rekstararhagnaður (EBIT) var 337 m.kr.  samanborið við 255 m.kr. á sama tímabili á fyrra ári en hagnaður tímabilsins var 69 m.kr. og lækkar um 63 milljónir. Lækkunin milli ára skýrist helst af hærri fjármagnsgjöldum sem skýrast m.a. af áhrifum hækkandi verðbólgu.
  • Veltufé frá rekstri á fjórðungnum er 832 m.kr. samanborið við 725 m.kr. á sama tímabili 2021.
  • Vaxtaberandi skuldir, leiguskuldbindingar og aðrar skuldir í lok tímabilsins námu samtals 10.750 m.kr. í lok tímabilsins og hafa lækkað um samtals 4.226 m.kr. frá áramótum.
  • Hrein fjármagnsgjöld eru 254 m.kr. á tímabilinu og hækka um 165 m.kr. á milli ára. Hækkunin skýrst m.a. af hærri stöðu leiguskuldbindinga frá fyrra ári, hærri vöxtum á markaði m.v. fyrra ár sem og mikilli verðbólgu á tímabilinu.
  • Heildarfjárfestingar á fyrstu sex mánuðum ársins 2022 námu 1.009 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins var 38,6% í lok 2F 2022 og eigið fé 8.690 m.kr.

Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri:

,,Ánægjulegt að sjá fjölgun viðskiptavina á sama tíma og brottfall hefur minnkað á milli ára. Með því að hlúa að ánægju Nova liðsins, viðskiptavina,byggja upp sterka innviði ásamt því að vera með besta díllinn hefur það skilað sér í excelnum.

Við erum nútímalegur valkostur og fyrsta val 50 ára og yngri. Verðmætur hópur sem vex með okkur og vill kaupa meiri þjónustu af Nova. Hópurinn kann að meta það sem við höfum fram að færa hvort sem það er myndlyklalaust líf, úrlausn eða nýjustu þjónustuna okkar Sjálfsvörn. Við viljum vera fyrst inn í framtíðina með snjallar lausnir.
Nova Klúbburinn er með stöðugan tekjuvöxt eða 6,8% á fyrstu 6 mán í samanburði við fyrra ár. Fjölgun viðskiptavina í farsíma- og netþjónustu er þar helsta skýring og fjölgaði viðskiptavinum um 6,7%.  Vörusala minnkar þar sem við teljum að helsta skýring er að neysla fer í ferðalög frekar en raftæki sem sést á að reikitekjur aukast á sama tímabili.

Nova hefur frá upphafi verið í farabroddi í innleiðingu nýjustu tækni og er komið lengst í uppbyggingu 5G á Íslandi. Í dag býður Nova 5G í 19 bæjarfélögum og á stór höfuðborgarsvæinu. Settir hafa verið upp 70 sendar og áætlum við að í árslok verði þeir 106. Við munum halda áfram og á árinu munu 9 sveitarfélög bætast við ásamt sumarbúastaðasvæðum.  Með góðum rekstri höfum við á ársfjórðungnum unnið enn frekar í að styrkja innviði okkar. Fjárfestingar á fyrri helmingi ársins voru milljarður sem er í takt við áætlanir. Á fjórðungnum var undirritað samstarf við Ljósleiðaran sem og við Sýn. Báðir samningar flýta enn frekar fyrir uppbygginu á 5G, tryggja hagræði og skalanleika inn í framtíðina,, 

Viðhengi


NOVA_-2

Attachments

NovaKlubburinn_Arshlutauppgjor_1H22_Kynning NovaKlubburinn_Arshlutauppgjor_1H22_Frettatilkynning NovaKlubburinn_Arshlutauppgjor_1H22_Reikningur